Matarboðið

Matarboðið er matreiðslunámskeið þar sem þú færð að elda með öðrum í litlum hópi og læra hluti sem nýtast í daglegu lífi. Þú tekur þátt í að plana hvað á að elda, gera innkaupalista, undirbúa matinn, elda, leggja á borð og taka á móti gestum.

Á námskeiðinu lærir þú að verða öruggari í eldhúsinu, taka ábyrgð og vinna með öðrum. Þú færð líka að æfa samskipti á afslappaðan hátt, til dæmis með því að bjóða öðrum í mat og taka þátt í matarboðinu.

Síðasta mánudag í hverjum mánuði halda þátttakendur alvöru matarboð fyrir sitt nánasta fólk. Þá færð þú tækifæri til að sýna hvað þú hefur gert, njóta stundarinnar með öðrum og upplifa stoltið sem fylgir því að búa eitthvað til sjálfur.

Smíðastofa

Í Smíðastofunni færð þú að taka gamla hluti og gefa þeim nýtt líf. Það geta verið húsgögn, skrautmunir eða eitthvað annað sem þig langar að breyta og gera flottara. Þú getur komið með þinn eigin hlut að heiman eða unnið með efni sem Drifið útvegar.

Þú vinnur verkefnið skref fyrir skref og lærir á leiðinni að skipuleggja þig, finna lausnir þegar eitthvað gengur ekki upp og klára verkefni frá byrjun til enda. Hér skiptir ekki bara máli hvernig hluturinn lítur út í lokin, heldur líka hvað þú lærir á leiðinni.

Í Smíðastofunni færðu að nota hendurnar, prófa þig áfram, æfa einbeitingu og byggja upp verklega færni. Eftir átta vikur geturðu tekið hlutinn þinn með heim eða jafnvel selt hann.

Endilega sendu línu ef það eru spurningar