Bílaþvottur

Bílaþvottur er tækifæri fyrir þig til að þróa ábyrgð, sjálfstæði og hagnýta færni. Þú tekur þátt í bílaþvotti nokkrum sinnum í viku og lærir að þrífa bíla. Meðal helstu verkefna er að þvo bíla að utan, þrífa felgur, ryksuga innréttingu og jafnvel bílabón. Þú lærir svo að nota réttan búnað og efni á öruggan hátt undir handleiðslu leiðbeinanda.

Vinna í verslunum

Verslunarverkefni eru fyrir þig sem vilt prófa að vinna í alvöru verslunarumhverfi og taka þátt í verkefnum sem skipta máli.

Þú færð að raða vörum í hillur, halda snyrtilegu í versluninni, aðstoða við einföld verkefni og hjálpa til við að hafa allt í góðu lagi. Þú lærir að fylgja leiðbeiningum, vinna skipulega og taka ábyrgð á því sem þú ert að gera.

Önnur atvinnutækifæri í boði

Samvera með eldri borgurum

Þú færð að vera til staðar fyrir íbúa á dvalarheimili, spjalla, spila, fara í léttar göngur eða taka þátt í einföldum verkefnum með þeim. Þetta snýst ekki um erfiða umönnun, heldur fyrst og fremst um nærveru, hlýju og góð samskipti.

Garðvinna

Garðvinnan er sumarverkefni fyrir þá sem elska útiveru. Þú færð að sinna hefðbundinni garðvinnu, eins og að raka, hreinsa til, snyrta svæði og halda umhverfinu snyrtilegu. Ef óskað er eftir því getur verkefnið líka falið í sér slátt og önnur létt garðverk.

Endilega sendu línu ef það eru spurningar