Ráðgjöf

Í Drifinu geturðu fengið einstaklings- og fjölskylduráðgjöf ef þú eða foreldrar þínir vilja. Hún hentar vel ef þú finnur þig síður í hópastarfi eða þarft meiri stuðning. Í ráðgjöfinni vinnum við með þér að persónulegum markmiðum og tökum raunhæf skref í átt að framförum. Við skoðum líka daglega rútínu og skipulag og finnum einfaldar leiðir sem hjálpa þér að halda utan um verkefni. Einnig er unnið með samskipti í gegnum samtal og endurgjöf. Að námskeiði loknu er hægt að fá áframhaldandi stuðning með áherslu á að nýta það sem þú hefur lært í daglegu lífi, skóla og félagslífi.