Velkomin í Drifið


Langar þig að prófa eitthvað nýtt, hitta fólk og hafa gaman?

Í Drifinu er hægt að prófa nýja hluti, kynnast nýju fólki og fundið eitthvað sem þú hefur áhuga á. Hvort sem það er að vinna á launum, verklegar tómstundir eða bara almennt spjall.

En engar áhyggjur þar sem Drifið er staður þar sem þú þarft ekki að vera með allt á hreinu.

Raunveruleg verkefni - raunveruleg reynsla

  • Drifið er byggt upp af iðjuþjálfum sem vilja skapa rými fyrir unglinga til að prófa sig áfram, finna styrkleika sína og taka þátt í verkefnum sem skipta máli. Við vinnum með unglingum á praktískan hátt — í gegnum virkni, samtal, stuðning og raunveruleg verkefni.

  • Við byrjum á því að kynnast þér og því sem skiptir þig máli. Markmiðið er ekki að breyta þér í einhvern annan, heldur að hjálpa þér að finna hvað virkar fyrir þig. Við leggjum áherslu á að gera hlutina saman, byggja upp traust og taka lítil skref í rétta átt.

  • Drifið er fyrir unglinga í 8.–10. bekk sem vilja prófa eitthvað nýtt, komast í meiri virkni eða finna sinn stað utan hefðbundins skóladags. Þú þarft ekki að vera með allt á hreinu til að byrja — það er nóg að mæta og prófa.

  • Hjá Drifinu getur þú tekið þátt í verklegum hópum, til dæmis matreiðslu, smíði eða öðrum verkefnum þar sem þú lærir með því að gera. Einnig er hægt að fá stuðning tengdan daglegri rútínu, félagslegri þátttöku og fá aðstoð við að taka fyrstu skrefin inn í atvinnutengd verkefni.

  • Markmiðið okkar er að skapa stað þar sem unglingar upplifa sig velkomna, fá tækifæri til að prófa sig áfram og byggja upp trú á eigin getu. Við viljum hjálpa þér að finna þinn takt, þína styrkleika og næsta skref.

Hverju ert þú að leita að?

  • Atvinna

    Hér er í boði launuð vinna í litlum verkhópum undir leiðsögn leiðbeinenda. Hvort sem þú ert að leitast eftir vinnu með skóla eða vilt prófa eitthvað nýtt þá erum við með eitthvað fyrir þig.

  • Virkni

    Fjölbreytt úrval af verkefnum í boði sem umsækjendur geta valið úr. Ekki er þörf á að velja bara eitt en það er ekki hægt að tryggja að allir komist í allt.

  • Ráðgjöf

    Stundum er gott að setjast bara niður með einhverjum sem er tilbúin að hlusta. Við hjálpum þér að skoða hvað gengur vel, hvað er erfitt og hvað næsta skref gæti hentað þér.